|
14.1.2012
Þá er 2011 liðið og 2012 tekur við. Jóla og áramótakveðjur í seinna lagi vil samt nota tækifærið og þakka öllum gamalt og gott.
Nú hestar hafa verið járnaðir og eitthvað farið að hreyfa Við erum ekki með nein trippi í húsinu í bili erum með nokkur í tamningu sem gaman verður að taka við og sjá hvað úr
meira »
|
|
20.12.2011
Fengum góða gesti frá London. Jóhannes og Sigrún halda jól hér á landi ásamt Emblu og Nökkva. Embla dreif sig í hesthúsið í dag og hitti þar stór vin sinn Baldur og fór í reiðtúr á Dúnu.
Það er skemmtilegt að sjá þá stuttu hvað hún er mannaleg með kústinn á leið inn í hlöðu.
meira »
|
|
12.12.2011
Þá er komið að því !
Fyrstu hestar komnir á hús. Við fórum og sóttum Baldur, Dúnu og Hreyfingu. Alltaf jafn spennandi að sækja hestana. Nú geta jólin komið fyrir mér.
meira »
|
|
1.12.2011
Varð að setja þessa mynd inn. Fór út á plan í síðustu viku og tók þessa skemmtilegu mynd. Það er rétt að taka fram að ekkert hefur verið átt við hana. Litirnir voru bara svona flottir.
Var á bráð skemmtilegum og fróðlegum fyrirlestri Ólafar Loftsdóttur dýrlæknis um hvað þarf að gera fyrir
meira »
|
|
14.11.2011
Fórum í góða veðrinu austur. Skoðuðum hross og sáum að allt er í mjög góðu standi. Engir hnjúskar sem betur fer.
Gaman að fara og skoða reiðhesta og trippi. Flest hrossin komu og skoðuðu okkur og við þau.
Hesthúsið er að verða klárt þannig að nú er bara að ákveða hvaða hross koma í fyrstu
meira »
|
|
20.10.2011
Þá er búið að rífa undan og sleppa. Það var mikið fjör hjá þeim Dúnu, Hreyfingu og Gjöf þegar þeim var sleppt upp á land. Búnar að vera í frekar litlum hólfum í sumar. Þær æddu um með rassaköstum og stuði. Gaman að horfa á gleðina.
Samt er það nú þannig að mann langar eiginlega að taka
meira »
|
|
27.9.2011
Þá er þessum árlega höfuðverk lokið þ.e. búið að ákveða nöfnin á folöldin. Ég setti inn hér til hliðar undir hrossarækt myndir af þeim ásamt nöfnum. Við ákváðum eftirfarandi nöfn: Uggi, Drápa, Væta og Lausn. Svo vonum við bara að allar væntingar og vonir rætist varðandi þessa gripi.
meira »
|
|
18.8.2011
Góðar fréttir af Þræsingarafkvæminu Vaðli frá Akranesi. Sigga systurdóttir mín og hennar maður fengu að halda Þræsingu sem er undan Tinnu og Hrafni frá Holtsmúla. Nú var verið að sýna Vaðal og hlaut hann alveg frábærar tölur fjögurra vetra. Hann fékk í fordómi 8.30 fyrir byggingu og 8,40 fyrir
meira »
|
|
1.8.2011
Hestaferðir eru líklega eitt það skemmtilegasta sem við gerum. Það er ótrúlega gaman að vera í góðum hópi og ferðast um landið. Lentum með alveg frábæru fólki fyrir rúmri viku í skemmtilegri ferð um Landeyjar í frábæru veðri. Höfum undanfarið verið að keyra heim rúllur og bagga og höfum þá séð alveg
meira »
|
|
13.7.2011
Loksins loksins komið gott veður.
Þessi flotta fjölskylda á myndinni var á sundæfingu á Hólsá þegar veiðiskapur stóð sem hæst. Vorum í sveitinni í síðustu viku við veiðiskap og heyskap. Einnig var farið í rekstrartúr og riðið út. Ekki leiðinlegt það. Nú verður farið að þjálfa fyrir fjörutúr
meira »
|
|
5.7.2011
Þá er skemmtilegu Landsmóti lokið. Heldur var nú kalt svona fyrripart móts og menn aðeins hugsi yfir tíðarfari. Skagafjörður skartaði þó sínu fegursta þegar leið á.
Þegar svona löngu móti er lokið fer maður alltaf að hugsa um hvort ekki sé hægt að fækka dögum. Ég hef verið að hugsa um hvort
meira »
|
|